Fagradalsfjall
Fagradalsfjall | |
---|---|
Hæð | 385 metri |
Land | Ísland |
Sveitarfélag | Grindavíkurbær |
Hnit | 63°54′18″N 22°16′21″V / 63.905°N 22.2725°V |
breyta upplýsingum |
Fagradalsfjall er móbergsfjall á Reykjanesskaganum vestanverðum. Það er talið vera vestasti hluti Reykjanesfjallgarðsins, en vestan þess eru stök fell. Fagradalsfjall er aflangt frá austri til vesturs. Hæsti punkturinn er Langhóll; um 390 metrar á hæð. Það hefur orðið til á ísöld við gos undir jökli og er smáhraunlag á því ofanverðu, sem gefur til kynna að gosið hafi náð lítið eitt upp úr jöklinum. Fjallið flokkast því sem stapi.
Þann 3. maí 1943 fórst herflugvél Bandaríkjahers á Fagradalsfjalli. Fjórtán manns létust en einn komst lífs af. Meðal hinna látnu var Frank Maxwell Andrews en hann var afar háttsettur í bandarískra hernum og heimildir segja að hann hafi átt að stýra innrásinni í Normandí í Evrópu. Eftirmaður hans í hernum var Eisenhower sem síðar varð forseti Bandaríkjanna. Flugvélin mun hafa ætlað að lenda á flugvellinum í Kaldaðarnesi.
Þann 19. mars 2021 hófst eldgos við fjallið, nánar tiltekið í Geldingadölum. Stóð það í 6 mánuði. Gos tók sig aftur upp í Meradölum í ágúst 2022 og í júlí 2023 við Litla-Hrút.
Myndir
[breyta | breyta frumkóða]-
Fagradalsfjall, loftmynd.
-
Bandarískir hermenn við flugvélabrakið 1943.
-
Fólk í hlíðum Fagradalsfjalls að virða fyrir sér eldgosið í Geldingadölum í lok mars 2021.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Frank Maxwell Andrews“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 17. ágúst 2011.
- „Hvað getið þið sagt mér um Fagradalsfjall?“. Vísindavefurinn.
- Flugvélaflök við Fagradalsfjall (ferlir.is)